ENSK1MT04 - Enska með áherslu á málfræði

málfræði, tjáning

Einingafjöldi: 4
Þrep: 1
Forkröfur: Engar
Ný menntastefna er höfð til grundvallar og grunnþættir menntunar eru hafðir að leiðarljósi. Unnið verður með grunnatriði enskrar málfræði og ritunar. Í áfanganum rifja nemendur upp þá færni sem þeir hafa þegar náð og þjálfa upp ný atriði.

Þekkingarviðmið

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
  • grunnþáttum enskrar réttritunar
  • einfaldri ritun sem felur í sér stuttar setninga og stök orð
  • að áherslur í framburði eru misjafnar hjá hverjum og einum
  • mikilvægi þess að hafa ensku á valdi sínu bæði á atvinnumarkaði og í einkalífi

Leikniviðmið

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
  • setja sér raunhæf markmið og þekkja leiðir að þeim
  • leita mismunandi leiða í vinnuferlinu
  • geta ritað stutt skilaboð á enskri tungu

Hæfniviðmið

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
  • nýta sér enska málfræði í ræðu og/eða riti
  • koma auga á styrkleika sína
  • efla sjálfstraust sitt
Nánari upplýsingar á námskrá.is