ENSK1ÞS04 - Enska með áherslu á þjónustustörf

Þjónustustörf

Einingafjöldi: 4
Þrep: 1
Forkröfur: Engar
Ný menntastefna er höfð til grundvallar og grunnþættir menntunar eru hafðir að leiðarljósi. Orðaforði sem tengist þjónustustörfum er hafður að leiðarljósi í þeim tilgangi að styrkja þá nemendur sem vinna eða munu hugsanlega vinna við þjónustustörf í framtíðinni. Brotið verður upp hefðbundið mynstur í enskukennslunni með áherslu á uppgötvun, gagnrýna hugsun, umræður og ígrundun ásamt hefðbundnum kennsluaðferðum. Unnið verður með ýmis hugtök sem tengjast þjónustu og þjónustustörfum á fjölbreyttan hátt.

Þekkingarviðmið

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
  • að enskukennsla getur verið fjölbreytt og áhugamiðuð
  • fjölbreyttum hugtökum sem tengjast þjónustustörfum
  • mikilvægi þess að geta tjáð sig á enskri tungu þegar unnið er við þjónustustörf
  • að vinnuferlið er ekki síður mikilvægt en afraksturinn
  • að hægt er að leita leiða á fjölbreyttan hátt
  • að sjónarhorn allra er jafnt mikilvægt

Leikniviðmið

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
  • að bjarga sér í ensku við ýmis þjónustustörf
  • að koma skoðunum sínum á framfæri
  • nálgast viðfangsefnin á mismunandi hátt

Hæfniviðmið

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
  • eiga samskipti við enskumælandi einstaklinga í gegnum ýmis þjónustustörf
  • nýta sér fjölbreyttar nálganir í námsferlinu
  • lesa í og/eða nýta sér mismunandi upplýsingar úr umhverfinu
  • hlusta á sjónarmið annarra af víðsýni
  • leggja mat á árangur sinn og möguleika sína
  • hlusta á aðra og tjá eigin skoðanir á ensku
  • leita nýrra leiða og mynda sér sjálfstæðar skoðanir
Nánari upplýsingar á námskrá.is