ENSK1BÓ04 - Enska með áherslu á bókmenntir

bókmenntir 20. aldar

Einingafjöldi: 4
Þrep: 1
Forkröfur: Engar
Ný menntastefna er höfð til grundvallar og grunnþættir menntunar eru hafðir að leiðarljósi. Áhersla er á læsi í víðu samhengi, s.s. á bókstafi og hljóð, umhverfi, tákn, reglur, samskiptamiðla, hugtök, tjáskipti, tilfinningar, lesefni og samskipti. Vinnuferlið miðast við að efla færni og sjálfsmynd nemenda til að takast á við fjölbreytt lesefni við hæfi hvers og eins.

Þekkingarviðmið

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
  • einföldum bókmenntatexta á enskri tungu
  • Ýmsum aldurs- og áhugamiðuðum hugtökum á enskri tungu
  • mikilvægi lestrar og bókmennta
  • mikilvægi tjáningar og hlustunar

Leikniviðmið

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
  • finna sér bókmenntir við hæfi á bókasöfnum og öðrum stöðum
  • nýta sér bókmenntir á fjölbreyttu formi, s.s. á stafrænum miðlum
  • tjá sig í mæltu og/eða rituðu máli
  • vinna með texta sem hann hefur lesið og/eða hlustað á
  • nýta sér leiðréttingarforrit og önnur hjálpargögn til verkefnavinnu
  • lesa upp og/eða tjá sig fyrir framan aðra
  • lesa og/eða hlusta á texta sér til gagns og gleði

Hæfniviðmið

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
  • nýta sér enskar bókmenntir
  • auka sjálfstraust sitt og trú á eigin málfærni í tjáningu og/eða ritun
  • nýta sér læsi í víðu samhengi
  • hlusta á sjónarmið annarra af víðsýni
  • lesa í og/eða nýta sér upplýsingar sem koma fram í útvarpi, sjónvarpi og í netmiðlum
  • lesa í umhverfi, samskipti, tilfinningar og reglur í þeim tilgangi að átta sig á hvað er viðeigandi hverju sinni
  • hlusta á aðra og tjá eigin skoðanir
  • lesa ýmsa texta, s.s. bækur, fréttir og fræðigreinar
Nánari upplýsingar á námskrá.is