ENSK1TÖ04 - Enska með áherslu á tölvuleiki

Tölvuleikir

Einingafjöldi: 4
Þrep: 1
Forkröfur: Engar
Ný menntastefna er höfð til grundvallar og grunnþættir menntunar eru hafðir að leiðarljósi. Unnið verður með tölvuleiki sem kennarinn velur í samráði við nemendur og aðra fagaðila sem þekkja vel til. Nemendur skiptast á að spila leikina en allir fylgjast með og öll ný orð og hugtök eru skráð niður og lögð á minnið. Kennarinn velur leikina með það í huga að nemendurnir þurfi bæði að nýta sér ritun og lestur til þess að komast áfram í leiknum og samhliða eflir nemandinn ensku kunnáttu sína.

Þekkingarviðmið

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
  • Þeim orðaforða sem kemur fram í tölvuleikjunum
  • Ýmsum aldurs- og áhugamiðuðum hugtökum
  • kostum þess að vera vel læs á enska tungu

Leikniviðmið

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
  • fylgja fyrirmælum sem koma fram í tölvuleikjum
  • nýta sér upplýsingar á stafrænum miðlum
  • taka þátt í umræðum
  • lesa upp og/eða tjá sig fyrir framan aðra

Hæfniviðmið

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
  • auka sjálfstraust sitt og trú á eigin hæfni í tölvuleikum
  • efla eigið tölvulæsi
  • lesa í og/eða nýta sér upplýsingar sem koma fram í tölvuleikjum
  • Þekkja muninn á því sem er raunverulegt og óraunverulegt
  • lesa í leik- og samskiptareglur
Nánari upplýsingar á námskrá.is