ENSK1FE04 - Enska með áherslu á ferðaþjónustu

enska fyrir ferðaþjónustu

Einingafjöldi: 4
Þrep: 1
Forkröfur: Engar
Ný menntastefna er höfð til grundvallar og grunnþættir menntunar eru hafðir að leiðarljósi. Áhersla er á að nemendur kynni sér ferðalög til annarra landa, hvernig hægt er að komast á áfangastað og hvað svæðið býður upp á fyrir ferðamenn. Nemendur velta fyrir sér umhverfinu, menningunni og fólkinu í landinu. Vinnuferlið miðast við að efla færni og sjálfsmynd nemenda til að takast á við það að verða sjálf ferðamenn sem ferðast til annarra landa í framtíðinni.

Þekkingarviðmið

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
  • hugtakinu ferðaþjónusta
  • mikilvægi þess að geta bjargað sér á öðru tungumáli
  • Ýmsum aldurs- og áhugamiðuðum hugtökum
  • ferðalögum til annarra landa

Leikniviðmið

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
  • nýta sér upplýsingar í umhverfinu, s.s. á flugvöllum og öðrum stöðum sem tengjast ferðaþjónustu
  • kynna sér ferðaáætlanir, hótelupplýsingar og upplýsingar um áfangastaði á veraldarvefnum
  • tjá sig í mæltu og/eða rituðu máli
  • taka þátt í umræðum
  • lesa og/eða hlusta á texta sér til gagns og gleði

Hæfniviðmið

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
  • ferðast um heiminn
  • auka sjálfstraust sitt og trú á eigin færni
  • lesa í og/eða nýta sér upplýsingar sem koma fram í útvarpi, sjónvarpi og í netmiðlum
  • lesa í umhverfi, samskipti, tilfinningar og reglur í þeim tilgangi að átta sig á hvað er viðeigandi hverju sinni
  • lesa í ýmsa texta, s.s. bækur, fréttir og fræðigreinar með eða án aðstoðar
  • hlusta á aðra og tjá eigin skoðanir
Nánari upplýsingar á námskrá.is