LÍFS1LM05 - Lífsleikni með áherslu á lýðræði og mannréttindi

Lýðræði og mannréttindi

Einingafjöldi: 5
Þrep: 1
Forkröfur: Engar
Ný menntastefna er höfð til grundvallar og grunnþættir menntunar eru hafðir að leiðarljósi. Áhersla er á lýðræði og mannréttindi og aðstæður og umhverfi ungs fólks skoðað í fjölbreyttu samhengi. Nemendur eru hvattir til að velta fyrir sér hugtakinu lýðræði og taka afstöðu til siðferðileg álitamála, s.s. mannréttinda, samábyrgðar, meðvitundar og virkni borgaranna til þátttöku í að móta samfélag sitt og hafa áhrif á það. Gert er ráð fyrir því að nemendur læri um lýðræði í lýðræði.

Þekkingarviðmið

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
  • hugtökunum lýðræði og mannréttindi
  • mikilvægi sjálfstæðis og sjálfsábyrgðar í lýðræðissamfélagi
  • að allir hafa hæfileika og þroskamöguleika
  • að í lýðræðisríki þurfa borgarnir að búa við mannréttindi og komast að samkomulagi
  • fjölbreytileika
  • eigin tilfinningum og skoðunum

Leikniviðmið

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
  • nýta sér gagnrýna hugsun
  • virða skoðanir annarra
  • Átta sig á fjölbreytileika samfélagsins og mismunandi menningarheimum
  • taka þátt í umræðum

Hæfniviðmið

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
  • skilja þá hugsun sem felst í hugtakinu lýðræði
  • skilja þá hugsun sem felst í hugtakinu mannréttindi
  • að spyrja spurninga og hlusta á sjónarmið annarra af víðsýni
  • Átta sig á tengingu á milli réttinda og skyldna
  • að láta skoðanir sínar í ljós
  • taka þátt í lýðræðissamfélagi á virkan og ábyrgan hátt
Nánari upplýsingar á námskrá.is