LÍFS1FJ05 - Lífsleikni með áherslu á fjölmiðla

Fjölmiðlar

Einingafjöldi: 5
Þrep: 1
Forkröfur: Engar
Ný menntastefna er höfð til grundvallar og grunnþættir menntunar eru hafðir að leiðarljósi. Mismunandi fjölmiðlar verða skoðaðir fjölbreytt. Skoðað verður á gagnrýnan hátt hvernig samskiptatæki fjölmiðlar eru og áhersla verður á að gera nemendur meðvitaða um mikilvægi, gildi og siðfræði og þær hættur sem tengjast fjölmiðlum nútímans.

Þekkingarviðmið

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
  • helstu tegundum fjölmiðla
  • hugtakinu tjáningarfrelsi
  • gildi fjölmiðla í lýðræðissamfélagi
  • hættum sem tengjast fjölmiðlum nútímans

Leikniviðmið

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
  • nálgast mismunandi fjölmiðla óháð miðlunarformi
  • draga aðalatriði út mismunandi fréttatilkynningum
  • endursegja eða endurflytja afmarkað efni
  • nýta sér fjölmiðla sér til gagns og/eða gleði
  • taka þátt í umræðum og tjá eigin skoðanir

Hæfniviðmið

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
  • vera meðvitaður um styrkleika, veikleika og hættur fjölmiðla
  • tjá sig um ýmis málefni sem fram koma í fjölmiðlum
  • nýta sér upplýsingar frá fjölmiðlum á gagnrýnan hátt
  • aðgreina auglýsingar frá öðru sem kemur fram í fjölmiðlum
Nánari upplýsingar á námskrá.is