ÍSLE1SA05 - Íslenska með áherslu á sköpun í víðu samhengi

Sköpun í víðu samhengi

Einingafjöldi: 5
Þrep: 1
Forkröfur: Engar
Ný menntastefna er höfð til grundvallar og grunnþættir menntunar eru hafðir að leiðarljósi. Unnið verður með alla þætti íslenskunnar þar sem sköpun er höfð að leiðarljósi í þeim tilgangi að brjóta upp hefðbundið mynstur í íslenskukennslu með áherslu á uppgötvun, gagnrýna hugsun, umræður og ígrundun ásamt hefðbundnum kennsluaðferðum. Notast verður við aldursmiðaðar bókmenntir, sjálfshjálparbækur og unnið með hugtök, málfræði, íslenska tónlist, lesskilning og fjölbreytt verkefni.

Þekkingarviðmið

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
  • hugtakinu sköpun í víðu samhengi
  • að sköpun er ferli sem byggist á ímyndunaraflinu
  • að vinnuferlið er ekki síður mikilvægt en afraksturinn
  • að hægt er að leita leiða á fjölbreyttan hátt
  • að það eru ekki alltaf allir sammála og það er allt í lagi
  • að sjónarhorn allra er jafnt mikilvægt

Leikniviðmið

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
  • leita mismunandi leiða í vinnuferlinu
  • að hægt er að nálgast viðfangsefni á mismunandi hátt
  • að beita mismunandi aðferðum til að túlka
  • að gagnrýna á uppbyggilegan hátt
  • að koma skoðunum sínum á framfæri

Hæfniviðmið

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
  • nýta sér fjölbreytta nálgun í daglegu lífi
  • leita nýrra leiða og mynda sér sjálfstæðar skoðanir
  • hlustað á sjónarmið annarra af víðsýni
  • lesa í og/eða nýta sér mismunandi upplýsingar
  • leggja mat á árangur sinn og möguleika sína
  • tjá eigin skoðanir
Nánari upplýsingar á námskrá.is