ÍSLE1LM05 - Íslenska með áherslu á lýðræði og mannréttindi

Læsi, lýðræði, mannréttindi og bókmenntir

Einingafjöldi: 5
Þrep: 1
Forkröfur: Engar
Ný menntastefna er höfð til grundvallar og grunnþættir menntunar eru hafðir að leiðarljósi. Unnið verður með alla þætti íslenskunnar og grunnþátturinn lýðræði og mannréttindi verður hafður að leiðarljósi. Notaðar verða aldursmiðaðar bókmenntir sem gefa fjölbreytta sýn á aðstæður og umhverfi ungs fólks. Sjálfshjálparbækur, íslensk tónlist og fjölbreytt verkefni verða nýtt í kennslunni. Nemendur verða hvattir til að velta fyrir sér hugtakinu lýðræði og taka afstöðu til siðferðilegra álitamála, s.s. mannréttinda, samábyrgðar, meðvitundar og virkni borgaranna til þátttöku í að móta samfélag sitt og hafa áhrif. Gert er ráð fyrir því að nemendur læri um lýðræði í lýðræði.

Þekkingarviðmið

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
  • hugtökunum lýðræði og mannréttindi
  • fjölbreytileika lýðræðis og mannréttinda
  • samhenginu á milli réttinda og skyldna
  • að í lýðræðisríki eiga borgarnir að búa við mannréttindi og komast að samkomulagi
  • að allir hafa hæfileika og þroskamöguleika
  • mikilvægi þess að eiga möguleika á því að velja

Leikniviðmið

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
  • Átta sig á fjölbreytileika samfélagsins og mismunandi menningarheimum
  • að beita gagnrýnni hugsun
  • virða skoðanir annarra
  • taka þátt í umræðum

Hæfniviðmið

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
  • skilja þá hugsun sem felst í hugtökunum lýðræði og mannréttindi
  • spyrja spurninga og hlusta á sjónarmið annarra af víðsýni
  • Átta sig á tengingu á milli réttinda og skyldna
  • láta skoðanir sínar í ljós
Nánari upplýsingar á námskrá.is