ÍSLE1TM05 - Íslenska með áherslu á tjáningu

málskilningur, tjáning

Einingafjöldi: 5
Þrep: 1
Forkröfur: Engar
Ný menntastefna er höfð til grundvallar og grunnþættir menntunar eru hafðir að leiðarljósi. Unnið verður með alla þætti íslenskunnar þar sem tjáning verður höfð að leiðarljósi. Áhersla er á að efla þekkingu, leikni og hæfni nemenda í notkun tjáskiptaleiða sem henta hverjum og einum. Megin áhersla verður á að viðhalda og byggja ofan á þann grunn sem nemendur búa nú þegar að. Farið verður í fjölbreytt viðfangsefni, s.s. umræður í litlum og/eða stórum hópum, framsagnarverkefni, hugtakaverkefni og fjölbreytt verkefni sem stuðla að því að styrkja sjálfstraust nemenda. Notast verður við aldursmiðaðar bókmenntir, sjálfshjálparbækur, íslenska tónlist og fjölbreytt verkefni.

Þekkingarviðmið

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
  • samskiptaleið sem hentar viðkomandi
  • skoðunarfrelsi og/eða tjáningarfrelsi
  • mikilvægi þess að láta skoðanir sínar í ljós og hlusta á sjónarmið annarra

Leikniviðmið

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
  • tjá sig fyrir framan nemendahópinn
  • virða skoðanir annarra
  • taka þátt í umræðum og tjá eigin skoðanir
  • leggja mat á eigin verkefni og/eða frammistöðu

Hæfniviðmið

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
  • vera meðvitaður um styrkleika sína
  • að spyrja spurninga og hlusta á sjónarmið annarra af víðsýni
  • bera virðingu fyrir skoðunum annarra
  • kynna sjálfan sig með fullu nafni og svarað spurningum um fyrirfram ákveðið viðfangsefni
  • bíða eftir að röðin komi að sér
Nánari upplýsingar á námskrá.is