HBFR1PH02 - Heilbrigðisfræði með áherslu á persónulegt hreinlæti

Persónulegt hreinlæti

Einingafjöldi: 2
Þrep: 1
Forkröfur: Engar
Ný menntastefna er höfð til grundvallar og grunnþættir menntunar eru hafðir að leiðarljósi. Lögð er áhersla á að nemandinn öðlist grunnþekkingu í heilbrigðisfræði með áherslu á persónulegt hreinlæti. Unnið verður með þætti sem auka færni nemandans í að taka ábyrgð á eigin líkama og líferni.

Þekkingarviðmið

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
  • persónulegu hreinlæti og miklvægi þess í daglegu lífi
  • samspili hreinlætis og líðan almennt
  • hvað felst í því að taka ábyrgð á eigin hreinlæti og snyrtimennsku
  • Áhrifum lifnaðarhátta á líðan
  • sjálfum sér sem kynveru og ábyrgðinni sem því fylgir

Leikniviðmið

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
  • stunda ábyrga lífshætti
  • Þekkja helstu þætti er varða persónulegt heilbrigði
  • Þekkja og greina hollar lífsvenjur og næringu
  • Þekkja eigin líkama og taka mark á skilaboðum frá honum
  • að sinna eigin hreinlæti
  • viðhafa ábyrga kynhegðun

Hæfniviðmið

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
  • að bera ábyrgð á eigin lífi
  • viðhafa persónulegt hreinlæti
  • viðhalda almennri vellíðan
  • viðhalda og bæta eigin heilsu
  • stunda hollt líferni
  • stunda ábyrga kynhegðun
Nánari upplýsingar á námskrá.is