HBFR1KF02 - Heilbrigðisfræði með áherslu á kynjafræði

Kynjafræði

Einingafjöldi: 2
Þrep: 1
Forkröfur: Engar
Ný menntastefna er höfð til grundvallar og grunnþættir menntunar eru hafðir að leiðarljósi. Unnið verður með stöðu karla og kvenna í nútímasamfélagi og fjallað um gagnrýna hugsun og nemendur æfðir í að temja sér hana. Fjallað verður um jafnrétti í tengslum við mismun kynjanna og samskipti, sjálfsmynd og sjálfsvitund ásamt almennu heilbrigði.

Þekkingarviðmið

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
  • mismunandi stöðu karla og kvenna í nútímasamfélagi
  • mikilvægi jafnréttis hvarvetna í þjóðfélaginu
  • gagnrýnni hugsun og merkingu hennar fyrir einstaklinginn
  • mikilvægi réttrar sjálfsmyndar
  • mikilvægi þess að öðlast færni í félagslegum samskiptum

Leikniviðmið

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
  • beita gagnrýnni hugsun, sérstaklega gagnvart hinum ýmsu miðlum
  • gera sér grein fyrir jafnrétti í þjóðfélaginu
  • skynja hvað er rétt og rangt og geta tekið ákvarðanir í samræmi við það
  • tala um tilfinningar og reynslu í félagslegum samskiptum við bæði kynin

Hæfniviðmið

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
  • beita gagnrýnni hugsun í hvívetna
  • horfa á mismunandi þjóðfélagshópa út frá jafnrétti og mannréttindum
  • hafa jákvætt viðhorf gagnvart mismunandi þjóðfélagshópum óháð stöðu þeirra
  • skynja eigin tilfinningar og þarfir og njóta sín í samvistum við aðra
  • geta tekið upplýstar ákvarðanir
Nánari upplýsingar á námskrá.is