STAR1ST05 - Starfsnám með áherslu á byrjun starfsferils

Starfsferill

Einingafjöldi: 5
Þrep: 1
Forkröfur: Engar
Ný menntastefna er höfð til grundvallar og grunnþættir menntunar eru hafðir að leiðarljósi. Í áfanganum kynnast nemendur helstu atvinnufyrirtækjum í nærsamfélaginu og þeim möguleikum sem þau bjóða upp á með tilliti til atvinnuþátttöku. Nemendur fá kynningu á helstu reglum (skrifuðum sem óskrifuðum) sem gilda á vinnustöðum og farið verður yfir almenn samskipti á vinnustað. Nemendur fá fræðslu um réttindi og skyldur starfsmanna á almennum vinnumarkaði og farið verður yfir almenna öryggis- og hollustuhætti á vinnustöðum.

Þekkingarviðmið

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
  • atvinnutækifærum og fyrirtækjum í nærsamfélaginu
  • Þeim atriðum sem taka ber tillit til við starfsval
  • tilgangi starfa og mikilvægi þeirra í tengslum við önnur störf
  • eigin styrkleikum og mikilvægi góðra samskipta
  • reglum, öryggi og hollustuháttum á almennum vinnustöðum
  • réttindum og skyldum launþega

Leikniviðmið

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
  • flokka atvinnufyrirtæki eftir eðli þeirra
  • meta eigin kunnáttu og reynslu með tilliti til starfsvals
  • bera ábyrgð á sjálfum sér og eigin gjörðum, t.d. að mæta á réttum tíma til vinnu
  • taka þátt í samræðum, bera virðingu fyrir skoðunum annarra og sýna umburðarlyndi
  • Þekkja réttindi sín og skyldur sem launþegi
  • meta hættur í vinnuumhverfi

Hæfniviðmið

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
  • taka þátt í atvinnulífinu
  • velja sér starfsvettvang
  • vera ábyrgur starfsmaður
  • gera sér grein fyrir samhengi milli atvinnugreina
  • vera hæfur til samvinnu
  • nýta sér hlífðarbúnað og hjálpartæki á vinnustað og forðast hættur
Nánari upplýsingar á námskrá.is