STAR1VF05 - Starfsnám með áherslu á vettvangsferðir

Vettvangsferðir

Einingafjöldi: 5
Þrep: 1
Forkröfur: Engar
Ný menntastefna er höfð til grundvallar og grunnþættir menntunar eru hafðir að leiðarljósi. Námið er að hluta til bóklegt nám og að hluta til fer námið fram í vettvangsferðum. Farið verður yfir samskiptareglur, öryggis og umhverfismál, réttindi og skyldur og hættur í umhverfinu. Í vettvangsferðum kynnast nemendur helstu atvinnutækifærum í umhverfinu og þeim möguleikum sem þau bjóða upp á m.t.t. atvinnuþátttöku.

Þekkingarviðmið

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
  • fjölbreyttum vinnustöðum í nærumhverfinu
  • tilgangi starfs og mikilvægi þess í tengslum við önnur störf
  • viðeigandi framkomu í vettvangsferðum
  • hættum sem geta verið í starfsumhverfinu

Leikniviðmið

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
  • að fara í vettvangsferðir og kynna sér sérsvið hvers staðar
  • sækja sér upplýsingar um nýja og framandi vinnustaði

Hæfniviðmið

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
  • Þekkja mismunandi vettvangsstaði og átta sig á hlutverkum þeirra
  • mikilvægi þess að mæta stundvíslega
  • fara í vettvangsferðir út frá námslegum markmiðum
Nánari upplýsingar á námskrá.is