HÚSA3ÞÚ09(FB) - Timburhús 2 Þakvirki, útveggjaklæðningar

Þakvirki og útveggjaklæðningu

Einingafjöldi: 9
Þrep: 3
Forkröfur: GLÚT2HH08, INNK3HH05 og INRE2HH08
Í áfanganum er kennd smíði. Meðal þess sem tekið er fyrir er útfærsla einstakra byggingarhluta, efnisval, staðsetning á stoðum, bitum og sperrum auk umfjöllunar um þakkvisti og frágang í kringum þakop. Áfanginn er verklegur þar sem nemendur fá þjálfun í almennum verkþáttum húsasmíða eins og meðferð áhalda og tækja, notkun smíðisfestinga, yfirborðsmeðferð, öryggis- og gæðamálum m.m. Áfanginn er á námsbraut í húsasmíði og lögð er áhersla á sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð ásamt hæfni til að vinna með öðrum í hóp.

Þekkingarviðmið

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
  • uppbyggingu berandi timburveggja
  • uppbyggingu þakvirkis úr timbri
  • yfirborðsmeðferð smíðaviðar
  • stífingum á grindarveggjum, staðsetningu stoða og festinga
  • frágangi á sperrum við sperrufót og mæni
  • stífingum á sperrum og vexlun í kringum þakop
  • mismunandi útfærslum á þakköntum og reglum um loftun
  • algengustu efnum og festingum í þakklæðningar
  • algengustu útfærslum á loftræstum timburklæðningum á útveggi
  • uppsetningu á vindvörn og klæðningagrind og reglum um loftun þakvirkis
  • skörun og neglingu borðaklæðninga
  • frágangi á borðaklæðningum í kringum veggop og á hornum og brúnum
  • uppsetningu lagnagrindar, afréttingu og frágang hennar
  • hvernig á að smíða og setja upp verkpalla og fallvarnir
  • uppbyggingu og uppsetningu loftræstra útveggjaklæðninga
  • eiginleikum og notkunarsviði algengra burðar- og klæðningakerfa
  • mismunandi festingakerfum og afréttingu þeirra
  • áhöldum og tækjum sem notuð eru við uppsetningu þakvirkja og klæðningar

Leikniviðmið

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
  • smíða þakvirki með hliðsjón af kröfum um styrkleika, einangrun og eldvarnir
  • greina algengar útfærslur þakvirkis, bæði fríberandi sperra og kraftsperra
  • greina helstu aðferðir og efni til að verja tré gegn fúa og veðrun
  • ganga frá þakgluggum og kvistum
  • velja áhöld og tæki til uppsetningar á grind og klæðningu
  • klæða og velja heppileg verkfæri

Hæfniviðmið

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
  • smíða þakvirki úr timbri og klæða með algengustu efnum
  • smíða þakvirki og klæða í samræmi við kröfur um styrkleika, einangrun og eldvarnir
  • klæða útveggi með liggjandi og standandi (timbur)útveggjaklæðningu
  • klæða útveggi með borðaklæðningu í samræmi við kröfur um styrkleika, einangrun og eldvarnir
  • einangra og klæða loft innanhúss
  • koma einangrun fyrir og ganga frá rakavarnarlagi
Nánari upplýsingar á námskrá.is