IÐNT3CN04 - Iðnteikning - CAD/CAM teikningar, ferlar, aðgerðir

CAD/CAM teikningar

Einingafjöldi: 4
Þrep: 3
Forkröfur: IÐNT3AC05
Nemendur kynnast aðferðum sem beitt er til að smíða hluti samkvæmt teikningu í tölvustýrðri iðnaðarvél. Þeir kynnast og verða færir um að beita ISO kóða og G kóða. Teikniforrit til að búa til vinnslustykki er kynnt (CAD - Computer Aided Design) og sömuleiðis vélaforrit til að forrita ferla og aðgerðir til vinnslu smíðahluta (CAM – Computer Aided Manufacturing).

Þekkingarviðmið

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
  • grundvallarhugtökum og virkni forrita tölvustýrðra iðnaðarvéla.
  • mælieiningum í teikniforritum.
  • notkunarmöguleikum cad-cam tækni.
  • hvernig verkfæri eru valin.
  • hlutverkum og virkni x, y og z ása.
  • uppbyggingu og virkni tækjanna.
  • teikningartáknum þeirra íhluta sem um er fjallað.
  • öryggisatriðum og öryggisstöðlum.

Leikniviðmið

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
  • vinna með teikningar og undirbúa fyrir vinnslu í tölvustýrðum iðnvélum.
  • áætla efnismagn.
  • skipuleggja og velja verkfæri fyrir mismunandi cnc-skipanir.
  • leysa verkefni fyrir þriggja ása cnc-stýrða rennibekki og fræsivélar.

Hæfniviðmið

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
  • beita cad og cam forritum á öruggan og árangursríkan hátt.
  • afla upplýsinga og gagna um vinnslu og skipulag verka fyrir cnc-stýrðar vélar.
  • mæla upp hlut, teikna í inventor og forrita í cam.
Nánari upplýsingar á námskrá.is