STÆR2VB05 - Rúmfræði og hornaföll

Hornaföll, rökfræði, rúmfræði

Einingafjöldi: 5
Þrep: 2
Forkröfur: Að hafa lokið grunnskóla með fullnægjandi hætti að mati skólans.
Meginefni áfangans er rúmfræði. Efnisþættir sem teknir eru fyrir í áfanganum eru: Rúmfræði, kynning á frumhugtökum rúmfræðinnar, hornasumma þríhyrnings, hlutföll í þríhyrningum og regla Pýþagórasar. Flatarmál og rúmmál. Horn við hring. Hornaföll í rétthyrndum þríhyrningum. Mælieiningar. Sannanir og rökfræði. Í áfanganum er lögð áhersla á skipulögð vinnubrögð, röksemdafærslur og nákvæmni í framsetningu við lausn verkefna í stærðfræði.

Þekkingarviðmið

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
  • flatarmáli og rúmmáli
  • hornaföllum í rétthyrndum þríhyrningum
  • pýþagórasarreglunni
  • hornasummu þríhyrnings
  • hlutföllum í þríhyrningum
  • horni við hring
  • metrakerfinu (metrar, fermetrar, rúmmetrar) og mælieiningum
  • sönnunum og rökfræði

Leikniviðmið

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
  • leysa rúmfræðileg vandamál
  • reikna horn og hliðar í þríhyrningum
  • reikna flatarmál og rúmmál og vinna með mælieiningar
  • reikna stærðir í einslægum þríhyrningum
  • finna ferilhorn, miðhorn, utanverð og innanverð horn
  • skilja og vinna með hornaföll í rétthyrndum þríhyrningum
  • vinna með og nota pýþagórasarregluna
  • nota röksemdafærslu við sannanir

Hæfniviðmið

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
  • fjalla um stærðfræðileg viðfangsefni og setja úrlausnir sínar fram skriflega á skiljanlegan og snyrtilegan hátt
  • skilja merkingu helstu stærðfræðitákna og hugtaka í námsefninu og geti útskýrt þau
  • nýta þekktar formúlur, vinna með þær og finna óþekkta stærð út frá þekktum stærðum og reglum
  • velja aðferðir sem við eiga hverju sinni til að leysa verkefni og beita þeim rétt
  • fylgja og skilja röksemdafærslur í mæltu máli og í texta
Nánari upplýsingar á námskrá.is