Í síðustu viku hélt nemendafélag Fjölbrautaskóli Norðurlands vestra aðalfund þar sem fráfarandi stjórn fór yfir starfsár félagsins og fjárhag þess, auk þess sem ný stjórn var kynnt eftir að úrslit kosninga lágu fyrir.
Alls voru 13 frambærilegir nemendur í framboði til sjö mismunandi embætta og var þátttakan í kosningunni góð.
Ný stjórn mun starfa með fráfarandi stjórn til 1. júní næstkomandi þegar formleg stjórnarskipti fara fram.
Selma skólameistari ávarpaði fundinn, þakkaði fráfarandi stjórn fyrir vel unnin störf í vetur og óskaði nýrri stjórn til hamingju með kjörið.
Stjórn nemendafélagsins skólaárið 2026-2027
Formaður: Eyþór Bjarmi Rúnarsson
Varaformaður: Katelyn Eva John
Gjaldkeri: Viktor Smári Davíðsson
Skemmtanastýra: Laufey Alda Skúladóttir
Ritstýra: Linda Fanney Sigurbjartsdóttir
Tæknisformaður: Kristján Leó Steinsson
Íþróttaformaður: Hallur Atli Helgason