Í áfanganum Frumkvöðlafræði fá nemendur tækifæri til að kynnast því hvernig fyrirtæki verða til, þróa eigin hugmyndir og vinna að uppbyggingu fyrirtækis frá grunni.
Eitt þeirra fyrirtækja sem varð til í áfanganum í vetur er Broddur, sem þróað hefur fæðubótarefni úr frostþurrkuðum broddi. Broddur er ríkur af næringarefnum og vaxtarhormónum og er hugsaður sem einföld leið til að bæta næringu við daglegt mataræði. Með frostþurrkun verður endingartími vörunnar góður og auðvelt er að blanda duftinu út í ýmsan mat og drykki.
Að fyrirtækinu standa nemendurnir Egill Ari Rúnarsson, Eyþór Bjarmi Rúnarsson, Halldór Stefánsson og Viktor Smári Davíðsson, undir leiðsögn Karítasar S. Björnsdóttur, kennara í frumkvöðlafræði.
Fyrirtækið tók þátt í Vörumessu ungra frumkvöðla í Smáralind í apríl sl. þar sem um 620 nemendur frá 18 framhaldsskólum kynntu og seldu nýsköpunarhugmyndir sínar. Í kjölfarið var Broddi boðið að taka þátt í alþjóðlegu frumkvöðlamóti, Arctic Youth Championship, sem fram fór í Tromsø í Noregi dagana 18.–20. maí sl.
Á mótinu kynntu nemendur fyrirtækið sitt fyrir dómnefndum og gestum, tóku þátt í sviðskynningum, viðtölum og samstarfsverkefnum með öðrum ungum frumkvöðlum frá Íslandi, Noregi og Finnlandi. Nemendur stóðu sig afar vel og fengu jákvæð viðbrögð við hugmynd sinni.
Ferðin var lærdómsrík og gaf nemendum tækifæri til að kynna verkefni sitt á alþjóðlegum vettvangi, mynda ný tengsl og öðlast reynslu sem mun nýtast þeim vel í framtíðinni. Nemendurnir hafa lagt mikla vinnu í verkefnið og uppskorið dýrmæta reynslu á móti.
Það hefur verið ánægjulegt að fylgjast með þeim vaxa í verkefninu, bæði sem frumkvöðlar og einstaklingar. Framtíðin er sannarlega björt.