Gettu betur lið FNV. Frá vinstri: Alexander Victor, Steinunn Daníella og Atli Steinn
Gettu betur lið FNV. Frá vinstri: Alexander Victor, Steinunn Daníella og Atli Steinn

Eftir úrtökupróf fyrir Gettu betur í lok ágúst var myndaður sex manna æfingahópur sem hefur æft tvisvar viku síðan í byrjun september. Sú breyting hefur orðið á fyrirkomulagi Gettu betur innan skólans að nemendur æfa nú á skólatíma, nýtast slíkar æfingar mun betur en æfingar á kvöldin og um helgar.  Þennan hóp skipa þau Auður Ásta Þorsteinsdóttir, Matthias Sigurðsson, Daníel Smári Sveinsson, Alexander Victor Jóhannesson, Steinunn Daníella Jóhannesdóttir og Atli Steinn Stefánsson.

Sú hefð hefur skapast í skólanum að nemendur æfingahópsins kjósa þá þrjá einstaklinga sem keppa fyrir hönd skólans í sjálfri Gettu betur keppninni sem hefst 8. janúar n.k. Þeirri kosningu er nú lokið og munu þau Alexander Victor, Steinunn Daníella og Atli Steinn keppa fyrir hönd skólans.

Æfingar halda svo áfram að fullum krafti fram að keppninni sjálfri.