Eins og fram hefur komið í fréttum er slæm veðurspá fyrir morgundaginn, miðvikudaginn 14. október, og útlit fyrir lítið ferðaveður.

Nemendum á heimavist hefur því verið ráðlagt að fara heim að loknum skóladegi í dag, þriðjudag. Þá hefur skólaakstur frá Blönduósi verið felldur niður á morgun.

Kennsla verður samkvæmt stundaskrá í fyrramálið fyrir þá nemendur sem eru hér í bænum og þurfa ekki að ferðast um langan veg í skólann. Öll kennsla fellur niður frá kl. 13:10.

Við óskum öllum góðs haustfrís og hvetjum ykkur til að fara varlega í umferðinni.