Þriðjudaginn 10. mars fóru nemendur í áfanganum starfsnám með áherslu á vettvangsferðir í heimsókn til nokkurra fyrirtækja og stofnana á Blönduósi.
Lagt var af stað frá FNV um morguninn og hittust allir við N1 áður en gengið var á milli staða yfir daginn.

Fyrsti viðkomustaður var lögreglustöðin þar sem nemendur fengu að fræðast um starf lögreglunnar og búnað hennar.

Að því loknu var farið á slökkvistöðina þar sem nemendur fengu að kynnast starfi slökkviliðsins og prófa ýmis tæki.Þar vakti mikla athygli þegar nemendur fengu að prófa klippurnar sem notaðar eru við björgun úr bílflökum.

Næst var fyrirtækið Átak heimsótt þar sem nemendur fengu kynningu á starfseminni og þeim verkefnum sem þar eru unnin.
Í hádeginu bauð TENI veitingastaðurinn hópnum í glæsilegt hádegishlaðborð sem var vel þegið og þökkum við þeim kærlega fyrir.

Síðdegis var VILKO heimsótt þar sem framleiðsla á kryddum og öðrum vörum var kynnt. Nemendurnir gripu tækifærið og tóku nokkur kíló af vöffludeigi með til að hafa á opnu dögunum sem verða í næstu viku. Að lokum var farið í Vörumiðlun þar sem nemendur fengu að heyra hvernig vörur eru fluttar og dreift um landið.
Alls staðar var tekið einstaklega vel á móti hópnum og nemendur fengu bæði fræðslu og tækifæri til að spyrja spurninga. Heimsóknin var bæði fræðandi og skemmtileg og gaf nemendum góða innsýn í fjölbreytt störf í samfélaginu.
Við þökkum öllum fyrirtækjunum fyrir frábærar móttökur.