Mynd með frétt
							 
				Nýnemadagar verða haldnir í Bóknámshúsi FNV fimmtudaginn 18. ágúst og föstudaginn 19. ágúst. Nemendur á dreifnámsstöðvum mæta í dreifnámsstofur á Hólmavík, Hvammstanga og Blöndudósi. Þessir dagar eru ætlaðir nýnemum sem koma beint úr grunnskóla.
 Á fimmtudeginum stendur dagskráin yfir kl. 10:00-12:00 og 13:00-14:30.
 Á föstudeginum stendur dagskráin yfir kl. 10:00-11:30.
 Heimavist FNV opnar fyrir nýnema miðvikudaginn 17. ágúst kl:17:00
 Fundur fyrir foreldra nýnema verður haldinn í Bóknámshúsi FNV miðvikudaginn 17. ágúst kl. 19:00. Fundinum verður streymt í gegnum Teams. Foreldrar fá fundarboð með tölvupósti þegar nær dregur.