Opnað fyrir umsóknir um nám á vorönn 2027

Opnað verður fyrir umsóknir um nám í dagskóla á vorönn 2027 þann 1. nóvember. Nú þegar er hægt að sækja um helgarnám í húsasmíði sem hefst í janúar.

Almenn umsókn fyrir dagskóla

Opið verður fyrir umsóknir um nám í dagskóla á vorönn 2027 frá 1. til 30. nóvember.

Athugið: Þetta á ekki við um nemendur sem eru nú þegar í dagskóla FNV og hafa valið áfanga fyrir næstu önn. Valtímabilinu er lokið og með áfangavali sínu staðfestu nemendur áframhaldandi skólavist á vorönn.

Fjarnám

Hægt verður að sækja um fjarnám fyrir vorönn 2027 frá 2. nóvember til 10. desember.

Helgarnám í húsasmíði

Einnig hefur verið opnað fyrir umsóknir um helgarnám í húsasmíði sem hefst í janúar 2027.

Þeir sem voru á póstlista hjá okkur hafa þegar fengið tölvupóst með upplýsingum um opnun fyrir umsóknir.

Haft verður samband við alla umsækjendur að umsóknarfresti loknum þegar innritun hefst.