Skáksett hannað og smíðað af vélstjórnarnemum

Nemendur í vélstjórn fengu það verkefni í áfanganum Iðnteikning 2 að hanna og smíða skáksett.
Hver nemandi bar ábyrgð á hönnun og smíði eins taflmanns, svo sem kónga, riddara og peða, en taflborðið sjálft var samstarfsverkefni hópsins.

Skáksettið var hannað í tölvuteikniforritinu Autodesk Inventor og smíðað í HAAS tölvurennibekkjum og fræsivélum skólans. Svörtu taflmennirnir voru síðan málaðir og svartir reitir taflborðsins skornir út með laser í Fab Lab.

Skáksettið verður til sýnis og afþreyingar fyrir nemendur í verknámshúsi skólans.