Rafmagnsleikar rafvirkjanema FNV voru haldnir í lok annar en þá reyndu nemarnir með sér í nokkrum þrautum sem samanstóðu af mælingum, tengingum, ídrætti, stýringum og að endingu pílukasti. Þá var grillið dregið fram og dýrindis lambakjöt, í boði Kjötafurðastöðvar KS, grillað af mikilli fagmennsku tveggja keppenda.
Fyrsta þrautin gekk út á að mæla óþekkta tengipunkta tveggja samrofa og eins krossrofa á sérhönnuðu tengibretti, tengja þá rétt saman með snúrum og að endingu við ljósaperu.

Í raflögnunum (ídrættinum) var sama uppi á teningnum, draga ídráttavíra á milli tveggja samrofa og eins krossrofa, og að endingu í ljósaperu sem kviknaði á ef rétt væri tengd.
Til útskýringar virka samrofar og krossrofar þannig að þeir kveikja og slökkva á sömu perunni, eftir því á hvern þeirra er þrýst.

Í stýringunum átti að víra og tengja snúningsáttarskipti fyrir þriggja fasa mótor. Þar eru segulliðar, sjálfheldur og snertur, ásamt stýrihnappaboxi, aðal íhlutirnir og þurfa að sjálfsögðu að tengjast rétt til að allt virki sem skyldi.

Í pílunni réðust svo úrslitin því eftir þann lið voru tvö lið efst og jöfn og þurfti einvígi milli þeirra til að skera úr um það hvert þeirra fór með sigur af hólmi í heildarkeppninni.

Mikil stemning var ríkjandi fyrir keppnina og mikið lagt í undirbúninginn, m.a. var nýtt lógó hannað fyrir rafmagnsdeildina sem nemendur þrykktu svo á boli í FabLab og klæddust í keppninni.

Dagurinn þótti takast afskaplega vel og verður stefnt á samskonar slútt að ári.