Lykilupplýsingar
Opið er fyrir skráningu í fjarnám á vorönn 2027 frá 2. nóvember – 10. desember og námið hefst 7. janúar.
Kennarar senda í upphafi annar upplýsingar til nemenda varðandi námið.
Nemendur í fjarnámi fá aðgang að Microsoft Office pakkanum hjá skólanum og geta notað hann á meðan þeir eru skráðir í nám við skólann. Hér má finna upplýsingar frá tölvuþjónustu Tölvuþjónusta | Fjölbrautaskóli Norðurlands vestra (fnv.is)
Skólinn notar samskiptavefinn Moodle og þar eru sett inn verkefni, kennsluáætlanir og fleira sem nemendur þurfa að fylgjast vel með og skila verkefnum þar í gegn. Nauðsynlegt er að fylgjast daglega með þar.
Nemendur skrá sig sjálfir inn í sína áfanga á Moodle og þar þarf innritunarlykil.
Inna er skráningarkerfi framhaldsskóla, þar er hægt að fylgjast með einkunnum og fleiru. Þar er hins vegar farið inn með rafrænum skilríkjum.
Greiðsluseðlar verða sendir út til nemenda og birtast í heimabanka en greiðsluseðlar nemenda undir 18 ára aldri eru sendir á forráðamenn.
Hafi skóla- og innritunargjald ekki verið greitt innan þriggja vikna frá upphafi annar er nemandi skráður úr áföngum.
Gjaldið er óafturkræft, en vinsamlega látið vita ef hætt hefur verið við nám svo hægt sé að fella niður greiðsluseðil.
Markmið
Markmiðið með því að bjóða upp á fjarnám er að gefa sem flestum kost á að stunda framhaldsnám óháð staðsetningu og tíma.
Námsfyrirkomulag
Fjarnám í Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra (FNV) er að mestu leyti nám á netinu og eru áfangar settir upp á Kennsluvefnum – moodle.
Boðið er upp á flest alla bóklega áfanga í fjarnámi. Fjarnemar geta uppfyllt einingar í íþróttum með því að taka aðra áfanga, vilji þeir útskrifast af einhverri þeirra námsbrauta sem í boði eru í skólanum.
Miðað er við að 30 einingar á önn samsvari fullu námi og bent er á að í nýrri námskrá samsvarar hver eining 18-24 klst. vinnu.
Námið er fyrst og fremst hugsað sem sjálfsnám undir handleiðslu kennara. Það krefst mikils aga og skipulagningar af hálfu nemenda og kennara. Sjálfsagi er mikilvægur þar sem fjarnám er að hluta til sjálfsnám og ekki er hægt að fá svör frá kennurum um leið og spurningar vakna. Það er því mikilvægt að lesa allar leiðbeiningar vel, hafa tímasetningar í heiðri og leysa öll verkefni, sem fyrir eru lögð. Vakni spurningar, sem ekki eru svör við í námsumhverfinu (kennsluvefnum), er hægt að senda fyrirspurn til kennara og ber honum að svara eigi síðar en annan virkan dag.
Kennarar beita fjölbreyttum kennsluaðferðum og því verður munur frá áfanga til áfanga hversu mikið lesefnið er, hvernig verkefnin verða, hvort og þá hversu mörg próf eru í áfanganum og annað sem við á. Kennari getur ákveðið að leggja námsefnið fyrir eins og hann telur best. Það getur verið kennslubók, kennsluefni á neti, eigið kennsluefni, myndbönd bæði eigin fyrirlestrar eða kynningar og af netinu, myndir eða annað sem hentar hverju sinni.
Samskipti
Samskipti við kennara fara fram í tölvupósti. Á kennsluvefnum er að finna kennsluáætlanir, verkefni, próf og fleira, sem máli skiptir í náminu.
Fyrstu skrefin og gjaldskrá
Allt nám og samskipti fara fram á íslensku. Nemendur sem ekki hafa lokið íslensku grunnskólaprófi fara í stöðumat áður en umsókn þeirra er samþykkt.
Nemendur sækja um fjarnám á heimasíðu skólans. Kennsla í fjarnámi við FNV hefst á sama tíma og annað skólastarf nema annað sé tekið fram í skilaboðum til nemenda.
Greiðsluseðill er sendur í heimabanka nemanda, en til forráðamanns ef nemandi er undir 18 ára aldri. Hafi skóla- og innritunargjald ekki verið greitt innan þriggja vikna frá upphafi annar er nemandi skráður úr áföngum.
Verð fyrir fjarnám er samkvæmt gjaldskrá skólans. Nemendur greiða innritunargjald auk skráningargjalds sem miðast við fjölda áfanga sem þeir skrá sig í; einn, tveir, þrír eða fjórir eða fleiri áfangar.
Upplýsingabréf eru send til umsækjenda um það leyti sem kennslan hefst. Í bréfinu eru meðal annars upplýsingar um aðgangs- og lykilorð sem nemendur fá í upphafi náms. Fjarnemar skólans fá aðgang að Office-pakkanum á meðan nemandi er í skólanum.
Að vera í fjarnámi
Nemendur þurfa að:
- hafa daglegan aðgang að nettengdri tölvu
- gera sér grein fyrir því að fjarnám felur í sér aukna ábyrgð og sjálfstæði í vinnubrögðum
- námið og námsefni fara fram á íslensku og þarf nemandi því að hafa gott vald á íslenskri tungu
- hafa lágmarkskunnáttu í tölvunotkun, þ.m.t. ritvinnslu og glærugerð
- hafa tök á að nota vefsíður og þar með talið kennsluvefinn Moodle þar sem að helstu upplýsingar og efni áfangans er að finna
- nemendur þurfa að láta kennara og fjarnámsstjóra vita vilji þeir hætta í áfanga
- eftir 3 vikur er ekki hægt að segja sig úr áfanga, áfanginn stendur eftir á Innu þó nemandinn hætti
Verklagsreglur kennara
- kennari setur skýra kennsluáætlun á kennsluvefinn þar sem fram koma markmið, tímaáætlun, verkefni og námsmat áfangans
- kennara ber að setja námsefni fram á aðgengilegan hátt og leitast við að útskýra það fyrir nemendum á eins skýran hátt og honum er unnt. Einnig skal hann vísa nemendum á hvar ítarefni er að finna, fari hann út fyrir námsefnið eins og það er í aðalkennslubók(um) áfangans
- kennari á að meta frammistöðu nemenda fyrir skil á verkefnum með einkunnum og/eða skriflegum umsögnum, sem fela í sér leiðbeiningar og útskýringar
Verklagsreglur fjarnema
- til að ná árangri í námi er mikilvægt að stunda námið jafnt og þétt og skila verkefnum og vera í tengslum við kennara. Fjarnám felur í sér aukna ábyrgð nemenda og krefst sjálfstæðari vinnubragða heldur en í dagskóla
- nemanda ber að lesa kennsluáætlun ítarlega í upphafi
- nemanda ber að fara inn á kennsluvefinn eins oft og kennarinn leggur til og helst daglega
- nemandi á að virða þær reglur, sem kennari setur um verkefnaskil
- nemandi á að láta kennara og fjarnámsstjóra vita ef hann ætlar að hætta námi í áfanganum
- nemendur eru hvattir til að senda fyrirspurnir til kennara í tölvupósti
Námsefni
Bókalista má nálgast á heimasíðu skólans.
Námstími og námsmat
Haustönn er frá miðjum ágúst fram að jólum. Vorönn er frá janúarbyrjun til maíloka.
Í fjarnámi eru almennt lokapróf í áföngum og vægi þeirra er á bilinu 40-70% af lokaeinkunn. Ná þarf 4,5 á lokaprófi svo námsmat annarra námsþátta gildi.
Námsmatsþættir eru nánar skilgreindir í kennsluáætlun hvers áfanga.
Lokapróf geta verið skrifleg í LockDown Browser og eru tekin í FNV eða á samþykktum próftökustað. Ef kostnaður fylgir próftöku á próftökustað utan FNV þurfa nemendur að bera þann kostnað. Ef um er að ræða munnleg lokapróf er skilyrði að þau séu tekin upp og/eða prófdómari sé viðstaddur.
Sjúkraliðabraut er kennd í samstarfi við MÍ og VA. Í sérgreinum sjúkraliðabrautar gilda aðrar námsmatsreglur en í almennu fjarnámi og þarf að kynna sér þær sérstaklega í hverjum skóla fyrir sig. Í þeim greinum sem kenndar eru í FNV er munnlegt próf sem gildir 40% af námsmati og í því þarf að ná 5,0. Prófið er skyldunámsmat og er ýmist um miðja önn eða í lok annar.
Náms- og starfsráðgjöf
Fjarnemar hafa aðgang að náms- og starfsráðgjafa, Margréti Helgu Hallsdóttur, hægt er að hafa samband í gegnum tölvupóst, margret@fnv.is, eða í síma 455 8000
Ráðgjöf við val á áföngum og námsmat
Hægt er að fá ráðgjöf við val á áföngum og námsmat hjá fjarnámsstjóra, áfangastjóra og náms- og starfsráðgjafa. Fjarnámsnemendur sem óska eftir mati á fyrra námi skulu senda inn öll gögn sem varða nám þeirra í öðrum skólum til fjarnámsstjóra. Nemendur sem eru skráðir í fjarnám í FNV fá fyrra nám sitt metið án aukakostnaðar. Nemendur sem ekki eru skráðir nemendur við skólann greiða 10.000 krónur fyrir námsmat.
Samstarf við aðra skóla
Fjölbrautaskóli Norðurlands vestra býður í samstarfi við 11 aðra framhaldsskóla á landsbyggðinni upp á fjarnám. Sjúkraliðanám er í samstarfi við MÍ og VA.