EFNA3OL05 - Ólífræn efnafræði II

Ólífræn efnafræði

Einingafjöldi: 5
Þrep: 3
Forkröfur: Ólífræn efnafræði á 2. þrepi
oxunar/afoxunarhvörf, oxunartölur, oxara og afoxara. Orku í efnahvörfum og varmabreytingar. Jafnvægislögmálið, og jafnvægi efnahvarfa. Lögmál Le Chateliers, leysni salta og leysnimargfeldi. Sýrur og basa, sýrufasta, sýru-/basahvörf , búffera, pH og títrun. Lögð verður áhersla á sjálfstæði í verklegum æfingum og vinnubrögðum almennt.

Þekkingarviðmið

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
  • oxun/afoxun og oxunartölun og hvernig er hægt að nýta þær
  • inn og útvermum hvörfum, hvarfvarma og virkjunarorku hvarfa
  • jafnvægislögmálinu og lögmáli le chateliers
  • sýrum og bösum, ph hugtalinu, sýru –basa pörum, búfferlausnum, römmum og daufum sýrum

Leikniviðmið

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
  • framkvæma verklegar æfingar og vinna úr niðurstöðum þeirra
  • finna oxunartölur og jafnvægistilla með þeim
  • reikna út orku í efnahvörfum
  • finna jafnvægisfasta og hvarfakvóta
  • finna leysni salta, leysnimargfeldi og nota lögmál le chateliers.
  • finna sýrustig , rammra og daufra sýra og búfferlausna

Hæfniviðmið

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
  • sýna sjálfstæði í vinnubrögðum og bera ábyrgð á eigin námsframvindu
  • sjá tengslin milli náttúrufræðigreina og geta yfirfært þekkingu og leikni á milli þeirra og tengja saman efnisþætti efnafræðinnar við lausn flókinna verkefna
  • nýta þekkingu úr efnafræði til að taka ákvarðanir og geta myndað sér skoðun og taka þátt í rökræðum sem byggja upp þekkingu á efnafræði
Nánari upplýsingar á námskrá.is