SJÚK2MS05 - Sjúkdómafræði 1

Meinafræði, sjúkdómar

Einingafjöldi: 5
Þrep: 2
Forkröfur: Líffæra-og lífeðlisfræði 103,203
Í áfanganum er fjallað um þróun sjúklegra breytinga í mannslíkama frá frumulöskunum til sjúkdóma í líffærakerfum. Viðbrögðum frumna og vefja við álagi er lýst og hlutverki samvægisferla í viðhaldi heilbrigðis. Fjallað er um grundvallarhugtök í meinafræði eins og ónæmisviðbrögð, viðgerðarferli og vefjadrep. Fjallað er um sýkingar, erfðir og æxlisvöxt og tengsl umhverfisáhrifa og sjúklegra breytinga í líkama. Áhættuþættir, einkenni, orsakir, afleiðingar og meðferðamöguleikar algengra sjúkdóma í stoðkerfi, taugakerfi og þekjukerfi eru teknir til umfjöllunar. Latneskt nafngiftakerfi í meinafræði og sjúkdómafræði er útskýrt.

Þekkingarviðmið

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
  • algengum fræðilegum hugtökum sem tengjast efni áfangans
  • mikilvægi samvægis fyrir heilbrigði líkamans
  • þróun sjúklegra breytinga í líkama
  • viðbrögðum frumna, vefja, líffæra, líffærakerfa við álagi og samvægistruflunum
  • algengum sýkingum í mannslíkama og einkennum þeirra
  • samspili umhverfis-og erfðaþátta í sjúkdómsþróun
  • flokkun, hegðun og frumorsökum æxlisvaxtar
  • áhættuþáttum, einkennum, orsökum, afleiðingum og meðferðarmöguleikum algengra sjúkdóma í þekjukerfi, stoð- og taugakerfi
  • fjölbreyttum miðlum til þess að viðhalda og þróa þekkingu sína í sjúkdóma-og meinafræði
  • latneskum nafngiftum í meinafræði og sjúkdómafræði

Leikniviðmið

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
  • nota algeng fræðileg hugtök sem tengjast efni áfangans
  • bera saman þróun sjúklegra breytinga í frumum, vefjum, líffærum og líffærakerfum
  • bera saman löskunaráhrif og smithæfni algengra sýkinga í mannslíkama
  • gera grein fyrir samspili umhverfis-og erfðaþátta í sjúkdómsþróun
  • útskýra flokkun, hegðun og frumorsakir æxlisvaxtar
  • gera grein fyrir áhættuþáttum, einkennum, orsökum, afleiðingum og meðferðarmöguleikum algengra sjúkdóma í þekjukerfi, stoð- og taugakerfi
  • nota fjölbreytta miðla til þess að viðhalda og þróa þekkingu sína í sjúkdóma-og meinafræði
  • nota latneskar nafngiftir yfir sjúkdóma og hugtök í meinafræði

Hæfniviðmið

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
  • rekja þróun sjúklegra breytinga í frumum, vefjum, líffærum og líffærakerfum og útskýra viðbrögð líkamans við þeim
  • viðhafa viðeigandi smitgát vegna smitandi sjúkdóma
  • draga ályktanir um möguleg áhrif umhverfislaskana og erfðagalla á sjúkdómsþróun
  • miðla þekkingu um meinafræði og sjúkdóma í þekjukerfi, stoðkerfi og taugakerfi á fjölbreyttan og skapandi hátt
  • nýta þekkingu sína í sjúkdómafræði í starfi
Nánari upplýsingar á námskrá.is