SJÚK2GH05(FÁ) - Sjúkdómafræði 2

geðraskanir, hjartasjúkdómar

Einingafjöldi: 5
Þrep: 2
Forkröfur: SJÚK2MS05
Í áfanganum er fjallað um líkamlega og geðrænna sjúkdóma og latneskt nafngiftakerfi sjúkdóma. Fjallað er um hugtök og sjúkdóma sem tengjast innkirtlakerfi, hjarta-og æðakerfi, öndunarfærum, meltingarfærum, þvag- og æxlunarkerfi. Áhættuþættir, einkenni, orsakir, afleiðingar og meðferðamöguleikar algengra sjúkdóma í fyrrnefndum líkamskerfum eru teknir til umfjöllunar. Algengum geðröskunum eru gerð skil og fjallað um forvarnir, einkenni og meðferð geðraskana. Skoðuð eru tengsl umhverfis, erfða og áhættuþátta við sjúkdómsþróun þar sem við á.

Þekkingarviðmið

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
  • algengum fræðilegum hugtökum sem tengjast efni áfangans
  • meingerðum, einkennum, orsökum, afleiðingum, forvörnum og meðferðarmöguleikum algengra sjúkdóma í innkirtlum, hjarta-og æðakerfi, öndunarfærum, meltingarfærum, þvag- og æxlunarkerfi
  • einkennum, orsökum, forvörnum og meðferðarmöguleikum algengra geðraskana
  • tengslum sjúkdómsþróunar og truflana á samvægisferlum í líkama
  • tengslum sjúkdómsþróunar við umhverfis-og áhættuþætti
  • fjölbreyttum miðlum til þess að viðhalda og þróa þekkingu sína í sjúkdómafræði.

Leikniviðmið

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
  • nota algeng fræðileg hugtök sem tengjast efni áfangans
  • gera grein fyrir meingerðum, einkennum, orsökum, afleiðingum, forvörnum og meðferðarmöguleikum algengra sjúkdóma í innkirtlum, hjarta-og æðakerfi, öndunarfærum, meltingarfærum, þvag- og æxlunarkerfi
  • bera saman einkenni, orsakir, forvarnir og meðferðarmöguleika algengra geðraskana
  • benda á tengsl sjúkdómsþróunar og truflana á samvægisferlum í líkama
  • benda á tengsl sjúkdóma við umhverfis-og erfðaþætti
  • nota fjölbreytta miðla til þess að viðhalda og þróa þekkingu sína í sjúkdómafræði

Hæfniviðmið

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
  • útskýra meingerð, einkenni, orsakir, afleiðingar, forvarnir og meðferðarmöguleika algengra sjúkdóma í innkirtlum, hjarta-og æðakerfi, öndunarfærum, meltingarfærum, þvag- og æxlunarkerfi
  • rekja tengsl sjúkdóma og umhverfis-og erfðaþátta, þar sem við á
  • miðla þekkingu um sjúkdóma í innkirtlakerfi, hjarta-og æðakerfi, öndunarfærum, meltingarfærum, þvag- og æxlunarkerfi auk geðraskana á fjölbreyttan og skapandi hátt
  • bera kennsl á algeng einkenni sjúkdóma og/eða frávik frá eðlilegu ástandi
  • tengja sjúkdómseinkenni og sjúkdómsástand
  • yfirfæra og nýta þekkingu í sjúkdómafræði í starfi.
Nánari upplýsingar á námskrá.is