SASK2SS05 - Samskipti

samskipti, sjálfsstyrking, tjáskiptareglur

Einingafjöldi: 5
Þrep: 2
Forkröfur: Æskilegur undanfari: SIÐF1SF05
Í áfanganum er fjallað um mikilvægi góðra samskipta milli manna. Fjallað er um mikilvægi samkenndar, jafnréttis, mannvirðingar og mannréttinda í samskiptum. Farið er í eflandi samskipti sem byggja á virðingu og fordómaleysi á jafnréttisgrundvelli. Fjallað er um áhrif ólíkra menningarheima og tjáskiptareglna á mótun samskipta einstaklinga, hópa og þjóða. Farið er í áhrif sjálfsmyndar og sjálfstrausts á samskipti og hvað heilbrigðisstarfsmenn þurfa að hafa í huga í samskiptum við skjólstæðinga, samstarfsfólk og aðstandendur.

Þekkingarviðmið

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
  • mikilvægi góðra samskipta
  • mikilvægi eflandi samskipta, sem byggja á virðingu, samkennd, fordómaleysi og jafnrétti
  • áhrifum ólíkra menningarheima á samskipti
  • áhrifum sjálfsmyndar og sjálfskilnings á samskipti
  • aðstæðum sem geta haft áhrif á samskipti
  • hvernig heilbrigðisstarfsmenn geta notað samskipti á árangursríkan hátt

Leikniviðmið

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
  • setja sig í spor annarra í samskiptum
  • sýna samkennd, virðingu og fordómaleysi í samskiptum
  • nota samskiptareglur og viðtalstækni á áhrifaríkan hátt í samskiptum
  • læra af eigin samskiptum og annarra

Hæfniviðmið

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
  • eiga góð samskipti við annað fólk án tillits til stöðu, aldurs eða þjóðernis
  • eiga farsæl samskipti við skjólstæðinga og samstarfsfólk í starfi
  • leysa samskiptaerfiðleika af þekkingu og virðingu fyrir sjónarmiðum allra hlutaðeigandi
Nánari upplýsingar á námskrá.is