FÉLA3ST05 - Stjórnmálafræði

stjórnmálafræði

Einingafjöldi: 5
Þrep: 3
Forkröfur: Nemendur skulu hafa lokið FÉLA3SH05
Í áfanganum er fjallað um ólíkar stjórnmálastefnur og hvernig þær tengjast hinum svo kallaða vinstri-hægri kvarða. Nemendur eru látnir máta sig inn á kvarðann til að átta sig betur á stjórnmálalegum skoðunum sínum. Fjallað er um ýmis hugtök og hugmyndir sem tengjast stjórnmálum - s.s. pólitíska félagsmótun, vald, lýðræði, fjölmiðla, Alþingi o.fl. Fjallað er um stöðu smáríkja í alþjóðasamskiptum og -samningum. Ýmis pólitísk álitaefni samfélagsins hverju sinni verða skoðuð í ljósi stjórnmálafræðinnar.

Þekkingarviðmið

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
  • vinstri-hægri kvarðanum og hvar hann stendur á honum.
  • ólíkum stjórnmálastefnum og hvernig þær tengjast umræðunni um vinstri-hægri.
  • þeim hugtökum sem fjallað er um í áfanganum.
  • stöðu Íslands í alþjóðasamskiptum og alþjóðasamningum.
  • stjórnmálum á Íslandi, hvaða stjórnmálaflokkar eru starfandi, hverjir eiga fulltrúa á alþingi og hverjir sitja í ríkisstjórn.
  • tengslum ólíkra stjórnmálastefna við íslensk stjórnmál.

Leikniviðmið

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
  • miðla viðfangsefnum áfangans í ræðu og riti.
  • skrifa styttri og lengri texta um stjórnmálaleg málefni þar sem hann tekur rökstudda afstöðu til málefnisins.
  • skoða íslenskt stjórnmálaumhverfi í ljósi þeirra stjórnmálastefna og hugtaka sem fjallað er um í áfanganum.
  • nota þá þekkingu sem hann hefur aflað sér til að átta sig á hvar hann stendur á vinstri-hægri kvarðanum og hvaða stjórnmálastefna fellur best að hugmyndafræði hans.

Hæfniviðmið

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
  • afla sér heimilda um efnisþætti áfangans, greina þær og miðla þeim.
  • taka rökstudda afstöðu til pólitískra álitamála.
  • útskýra tengsl námsefnisins við íslenskt stjórnmálaumhverfi.
  • nota öguð vinnubrög, taka ábyrgð á námi sínu og vinna í samvinnu við aðra.
  • taka virkan og ábyrgan þátt í lýðræðislegu samfélagi.
Nánari upplýsingar á námskrá.is