RLTK3RB05 - Raflagnateikning

Rafvirkjabraut

Einingafjöldi: 5
Þrep: 3
Forkröfur: RLTK2RB05
Nemendur öðlist vald á teikningalestri á stærri neysluveitum s.s þjónustu- og iðnaðarveitum allt að 200 Amper. Þá læra nemendur að teikna slíkar veitur; teikna sniðmyndir af gegnumtökum, afstöðumyndir auk grunnmynda. Lögð er áhersla að nemendur læri að magntölu- og kostnaðartaka ofangreindar veitur. Tölvutæknin er nýtt við gerð raflagnateikningana seinni hluta áfangans.

Þekkingarviðmið

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
  • Íslenskum staðali um raflagnateikningar fyrir neysluveitur allt að 200 a.
  • heitum og hugtökum raflagnateikninga
  • magntöku og kostnaðartöku raflagna
  • helstu teikniforritum
  • Öllum almennum og sértækum teiknitáknum
  • teiknireglurum og staðalákvæðium varðandi þurra-, raka– og rykuga staði.

Leikniviðmið

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
  • lesa úr raflagnateikningum.
  • teikna í ofangreindar neysluveitur.
  • beita tölvuforriti við gerð raflagnateikninga.

Hæfniviðmið

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
  • velja og ákvarða efni fyrir raflagnir í öllum neysluveitum.
  • nýta sér minnst eitt teikniforriti sem notað er við gerð teikninga
  • velja og ákvarða búnað og raflagnaefni fyrir allar neysluveitur.
  • magntaka og reikna kostnað á tölvtæku formi fyrir allar neysluveitur.
Nánari upplýsingar á námskrá.is