HEST1JÁ01 - Járningar

Járningar

Einingafjöldi: 1
Þrep: 1
Forkröfur: REIM1RA04 (Reiðmennska 1)
Fjallað er um líffærafræði neðri hluta fótar og farið yfir áhrif járninga á fótaheilbrigði hestsins. Samspil járninga og fótstöðu við hreyfingar og ganglag verður jafnframt til umfjöllunar. Farið er yfir þau verkfæri sem notuð eru við járningar og verklag við notkun þeirra. Nemendur fá verklega þjálfun í almennum járningum.

Þekkingarviðmið

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
  • líffærafræði neðri hluta fótar hesta.
  • áhrifum járninga á fótaheilbrigði hests.
  • samspili járninga og fótstöðu við hreyfingar og ganglag hesta.
  • helstu verkfærum sem notuð eru við járningar.
  • helstu vinnuaðferðum sem notaðar eru við járningar.

Leikniviðmið

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
  • skoða líffærafræði neðri hluta fótar hests.
  • skoða áhrif járninga á fótaheilbrigði hests.
  • skoða samspil járninga og fótstöðu við hreyfingar og ganglag hesta.
  • beita helstu verkfærum sem notuð eru við járningar.
  • beita helstu vinnuaðferðum sem notaðar eru við járningar.
  • járna hest.

Hæfniviðmið

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
  • gera sér grein fyrir áhrifum járninga á fótaheilbrigði hesta
  • tengja samspil járninga og fótstöðu við hreyfingar og ganglag hesta
  • leysa járningar af hendi með öryggi og heilbrigði hests og knapa í huga
Nánari upplýsingar á námskrá.is