GRUN1FF04 - Undirstöðuatriði í teiknifræðum

Fallmyndun og fríhendisteikning

Einingafjöldi: 4
Þrep: 1
Forkröfur: engar
Í áfanganum er lögð áhersla á að nemandinn öðlist almenna undirstöðuþekkingu og þjálfun í teiknifræðum. Fjallað er um fallmyndun, ásmyndun og fríhendisteikningu. Nemandinn öðlist færni í meðferð og notkun mæli- og teikniáhalda, myndrænni vinnu með viðfangsefni starfsgreina. Að auki hlýtur nemandinn grunnþjálfun í gerð vinnuteikninga og þrívíðra rissteikninga ásamt lestri teikninga.

Þekkingarviðmið

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
  • mismunandi teikniaðferðum, s.s. fríhendisteikningu og fallmyndun
  • upplýsingamiðlun með tæknilegum teikningum
  • meðferð og notkun teikni- og mæliáhalda
  • tvívíðum og þrívíðum vinnuteikningum
  • lestri teikninga
  • uppsetningu teikninga á vinnublað, áritun og frágangi þeirra

Leikniviðmið

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
  • lesa hornréttar fallmyndir
  • lesa sneiðmyndir af einföldum hlutum
  • teikna einfaldar vinnuteikningar með fallmyndun og nota við það viðeigandi teikniáhöld
  • lesa og skilja einfaldar tæknilegar vinnuteikningar og einfaldar þrívíðar teikningar
  • teikna ásmyndir af einföldum hlutum
  • teikna fríhendis

Hæfniviðmið

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
  • skipuleggja vinnublað, árita og ganga frá einföldum teikningu
  • miðla upplýsingum á skilvirkan hátt
  • málsetja einfaldar vinnuteikningar eftir viðeigandi reglum, venjum og stöðlum í mismunandi mælikvörðum
  • nýta sér teiknikunnáttu í starfi
Nánari upplýsingar á námskrá.is