GRUN2ÚF04 - Útflatningar og fallmyndun

fallmyndun, fríhendisteikning, tölvuteikning, útflatningar

Einingafjöldi: 4
Þrep: 2
Forkröfur: GRUN1FF04
Í áfanganum lærir nemandinn um meðferð teikniáhalda, mælitækja, mælikvarða og frágang og áritun teikninga. Rætt um teiknireglur og tegundir lína. Nemandinn vinnur flatarmálsteikningar og beitir bogaskurði við gerð horna, boga, lína o.fl. Þá teiknar hann fallmyndir og rúmmyndir og vinnur útflatningar. Nemandinn æfir teikningalestur og þjálfar rúmskynjun með notkun módela. Nemandinn fær leiðsögn við að teikna einfaldar fall- og útflatningsmyndir í tölvu og hlýtur grunnþjálfun í gerð fríhendismynda.

Þekkingarviðmið

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
  • mismunandi teikniaðferðum, s.s. útflatnings- og fríhendisteikningu ásamt fallmyndun
  • frumformum og sneiðskorningum m.t.t. greiningar og myndunar raunstærða á línum og flötum
  • gildi frumforma fyrir teikningu og mótun viðfangsefna
  • upplýsingamiðlun með tæknilegum teikningum
  • meðferð og notkun teikni- og mæliáhalda
  • tvívíðum og þrívíðum vinnuteikningum
  • lestri fallmynda
  • uppsetningu teikninga á vinnublað, áritun og frágangi þeirra

Leikniviðmið

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
  • teikna útflatninga af einföldum rúmmyndum
  • lesa útflatnings- og hornréttar fallmyndir ásamt sneiðmyndum af einföldum hlutum
  • teikna fríhendis vinnuteikningar með fallmyndun
  • teikna einfaldar tvívíðar fríhendisteikningar
  • teikna einfaldar útflatnings- og fallmyndir í tölvu
  • teikna flatarfræðileg form og tvívíðar vinnufyrirmyndir

Hæfniviðmið

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
  • skipuleggja vinnublað, árita og ganga frá tæknilegum teikningum
  • miðla upplýsingum á skilvirkan hátt
  • málsetja vinnuteikningar eftir viðeigandi reglum, venjum og stöðlum í mismunandi mælikvörðum
  • efla formskyn sitt
  • vinna myndrænt með viðfangsefni starfsgreina s.s. hönnunar- og iðngreinar
  • nýta sér teiknikunnáttu í starfi
Nánari upplýsingar á námskrá.is