LOGS1PS03(AV) - Logsuða og logskurður

Plötusuða

Einingafjöldi: 3
Þrep: 1
Forkröfur: engar
Í áfanganum lærir nemandinn að umgangast gashylki, logsuðu- og logskurðartæki. Hann lærir að fylgja suðulýsingu, logsjóða plötujárn í suðustöðum PA, PC og PF með I-rauf. Nemandinn fær þjálfun í að lóða og logskera fríhendis og bregðast rétt við ef hættu ber að höndum. Farið er yfir brunahættu vegna loga og neistaflugs, sprengihættu vegna áhrifa acetýlens á eir og áhrifa súrefnis á olíu og feiti og vegna íláta sem innihalda eða hafa innihaldið eldfim efni. Farið er í undirstöðuatriði heilsuverndar, hlífðarfatnað og hlífar.

Þekkingarviðmið

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
  • mikilvægi hlífðarfatnaðar og hlífa ásamt heilsuvernd á vinnusvæði
  • gashylkjum, meðferð þeirra við geymslu og flutning, litamerkingum og frágangi topploka
  • notkunarsviði acetýlens og súrefnis
  • suðuloga, blöndu hans og hitastigi
  • áhrifum kolandi loga, súrefnisríks og hlutlauss loga á suðupollinn
  • gerðum og samsetningu raufa og áhrifum þeirra á spennu
  • ástæðum þess að ekki sé hægt að logskera alla málma
  • virkni lóða og lóðdufts
  • staðlinum Íst en 287-1 um hæfnispróf
  • staðlinum Íst en 5 817 um mat á suðum og suðugalla

Leikniviðmið

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
  • nota suðulóð og lóðduft
  • setja upp mæla á hylki, slöngur og sköft
  • sjóða 1 – 3 mm plötustál með i-rauf í pa, pf og pc
  • stilla réttan vinnuþrýsting
  • logskera stál fríhendis
  • sjóða stúfsuðu í plötu í stöðum pa, pc, og pf
  • nota hlífðarfatnað og öryggisbúnað

Hæfniviðmið

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
  • velja hlífðarbúnað og hlífar í samræmi við aðstæður
  • stilla suðutæki í samræmi við notkun
  • velja réttan vinnuþrýsting
  • velja suðuspíssa samkvæmt efnisþykkt
Nánari upplýsingar á námskrá.is