HLGS2MT03 - Suðuaðferðir og suðutæki

MIG/MAG og TIG suða

Einingafjöldi: 3
Þrep: 2
Forkröfur: engar
Í áfanganum lærir nemandinn MIG/MAG-suðu í efnisþykktum 2 – 6 mm og TIG-suðu í efnisþykktum 1 – 3 mm. Lögð er áhersla á að nemandinn öðlist grunnfærni og þekkingu á suðuaðferðum, að hann þekki mun á þeim, kostum þeirra og göllum og geti soðið stál, ryðfrítt stál og ál. Farið er yfir öryggisbúnað s.s. hlífðarfatnað og hlífar, hættur og helstu varúðarráðstafanir vegna þeirra.

Þekkingarviðmið

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
  • gastegundum og gasblöndum sem notaðar eru við suðu á stáli, áli og ryðfríu stáli
  • hlutverki hlífðargass og réttum stillingum
  • öllum hlutum suðubyssu og leiðara fyrir mig/mag og tig
  • virkni suðutækja, drifbúnaði og pólun
  • virkni viðnámsspólu í mig/mag og tig suðutækjum
  • ýmsum gerðum kveikinga í mig/mag og tig-suðuvélum
  • brunahættu vegna straumleiðara
  • helstu hættum og varúðarráðstöfunum vegna geislunar, hita, reyks, ósonmyndunar og eldfimra efna
  • hlífðarfatnaði og hlífum við vinnu

Leikniviðmið

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
  • meðhöndla búnað til suðu
  • setja rúlluvír í suðutæki
  • nota tig- og mig/mag suðu til að sjóða saman hluti í ýmsum suðustöðum s.s. pa-bw, pa-fw og pf-fw
  • gegnumsjóða þunna stálplötu öðru megin frá
  • nota hlífðarfatnað og öryggisbúnað

Hæfniviðmið

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
  • stilla suðutækin, þ.e. straum, vírhraða, spennu og viðnám
  • velja rétta spíssa
  • stilla gasflæði, velja gashulsu og skaut
  • velja hlífðarbúnað og hlífar í samræmi við aðstæður
  • meta algengustu suðugalla og greina orskakir þeirra
Nánari upplýsingar á námskrá.is