RAFL1GB03 - Raflagnir grunndeildar rafiðna B

Raflagnir

Einingafjöldi: 3
Þrep: 1
Forkröfur: RAFL 1 GA 03 Raflagnir grunndeildar rafiðna A
Fjallað er um framleiðslu rafmagns og mismunandi gerðir flutningskerfa. Farið er í öryggismál, hvernig á að haga sér við hinar ýmsu aðsæður. Nemendur læra að nýta sér reglur og staðla við lagnir. Farið verður í mismunandi gerðir rofa, lagnir íbúðarhúsa og greinatöflur tengdar. Helstu heimilistæki eru kynnt og orkunotkun þeirra skoðuð. Nemendur læra að velja leiðara miðað við orkunotkun og velja varbúnað við hæfi.

Þekkingarviðmið

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
  • slysahættum sem eru á vinnu við rafmagn á vinnustöðum.
  • framleiðslu raforku og helstu flutningsleiðum til notenda.
  • utanaðkomandi aðstæðum á raflagnir eins og raka og varma.
  • Öryggis og reglugeðarákvæðum er varða raflagnir og varnaraðferðir.
  • hellstu heimilistækjum og straumþörf þeirra.
  • • mikilvægi fagmannlegra vinnubragða

Leikniviðmið

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
  • tengja ýmsa rofa og búnað sem tilheyra minni veitum.
  • forðast hættur bæði í vinnu við rafmagn og umgengni á vinnustöðum.
  • draga leiðara í rör.
  • skipleggja starf sitt og beita faglegum vinnubrögðum.
  • tengja helstu rofa og tengla í minni veitum.

Hæfniviðmið

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
  • gera sér grein fyrir hættum sem leynast við vinnu með rafmagn og verkfæri.
  • gera sér grein fyrir orkunotkun í heimahúsum og velja búnað í samræmi við hana.
  • velja raflagna efni í minni veitur.
  • leggja raflagnir og tengja í minni veitur.
Nánari upplýsingar á námskrá.is