VINU3SH02 - Undirbúningur fyrir starfsþjálfun í hestamennsku, seinni hluti

Seinni hluti

Einingafjöldi: 2
Þrep: 3
Forkröfur: HEST2GÞ05, REIM2GÞ05, FÓHE1GR03, VINU2FH02
Meginviðfangsefni áfangans er að undirbúa nemendur fyrir starfsþjálfunaráfangann VINH3SH10. Nemendum er kennt af fylla út vinnuskýrslur um unna verkþætti, fylla út gátlista um beitarástand lands og taminga- og þjálfunarástand hesta. Einnig er farið í gerð þjálfunaráætlana og mikilvægi markmiðasetningar, ásamt gerð dagbókar. Farið er yfir fjölbreyttar tamningar- og þjálfunaraðferðir.

Þekkingarviðmið

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
  • helstu verkþáttum starfsnema á starfsnámsstað
  • viðteknum starfsaðferðum og vinnulagi sem nýst getur í hestamennsku
  • starfs- og ábyrgðarsviði starfsnema á starfsnámsstað
  • hirðingu og fóðrun hrossa
  • mismunandi vinnuaðferðum, nálgun við þjálfun hesta
  • mati á andlegu og líkamlegu heilbrigði hrossa
  • grunnþjálfun hesta, hringteymingum og vinnu við hönd
  • markvissum vinnubrögðum
  • helstu þjálfunaraðferðum
  • kostum og göllum mismunandi vinnuaðferða
  • mati á tamningu og þjálfunarstigi hrossa.
  • mati á beitilandi fyrir hross.

Leikniviðmið

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
  • leggja rétt mat á einfaldar aðstæður og taka sjálfstæðar ákvarðanir varðandi verklag á vinnustað.

Hæfniviðmið

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
  • fylgja leiðbeinandi verklagsreglum á vinnustað
Nánari upplýsingar á námskrá.is