RAFM1GA05 - Rafmagnsfræði og mælingar grunndeild A

Almenn rafmagnsfræði

Einingafjöldi: 5
Þrep: 1
Farið er í helstu hugtök og lögmál rafmagnsfræði jafnstraums. Lögð er áhersla á að nemendur læri að nýta sér þessi lögmál við reikninga og gerðar prófanir á þeim með mælingum í jafnstraumsrásum. Farið er yfir mismunandi gerðir spennugjafa auk þess sem nemendur eiga að þekkja helstu teiknitákn í einföldum jafnstraumsrásum.

Þekkingarviðmið

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
  • helstu hugtökum, s.s. straumi, spennuog viðnámi.
  • teiknitáknum fyrir mæla, spennugjafa og ýmsar gerðir viðnáma.
  • helstu lögmálum, s.s. ohms- kirkhoffs- og afllögmáli.
  • helstu forskeytum eininga, s.s. milli, míkró, nanó o.s.frv

Leikniviðmið

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
  • framkvæma reikninga í einföldum jafnstraumsrásum.
  • teikna einfaldar jafnstraumsrásir.
  • nota fjölsviðsmæli.
  • tengja einfaldar jafnstraumsrásir.

Hæfniviðmið

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
  • tengja einfaldar jafnstraumsrásir eftir teikningu og framkvæma mælingar á þeim.
  • reikna einfaldar jafnstraumsrásir og sannprófa niðurstöður með notkun lögmála og/eða mælingum.
Nánari upplýsingar á námskrá.is