RAFM2GB05 - Rafmagnsfræði og mælingar grunndeildar B

Grunndeild B

Einingafjöldi: 5
Þrep: 2
Forkröfur: RAFM1GA5
Farið er í hvernig riðstraumur verður til og hegðar sér auk helstu spennu/straum gilda í riðstraum. Farið í helstu hugtök og lögmál rafmagsfræði riðstraums. Lögð áhersla á að nemendur geti nýtt sér þessi lögmál til lausna á verkefnum bæði í reikningi og með mælingum. Farið er í helstu teiknitákn í riðstraumsrásum með þéttum, spólum og viðnámum. Nemendur læri hvað fasvik er og geti reiknað það, mælt og leiðrétt. Kennd er notkun helstu mælitækja í riðstraum svo sem sveiflsjá og tíðnigjafa auk þess sem nemendur skulu læra að nýta sér hermiforrit til mælinga.

Þekkingarviðmið

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
  • helstu lögmálum í riðstraumsrásum svo sem spanlögmáli faradeys og lenz lögmáli.
  • helstu gildum sem notuð eru svo sem toppgildi, virkt gildi, meðalgildi.
  • teiknitáknum í span og rýmdar rásum.
  • helstu reikningum í riðstraumsrásum.
  • fasviki.

Leikniviðmið

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
  • reikna einfaldar riðstraumsrásir með rýmd og spani.
  • notkun helstu mælitækja fyrir riðstraumsrásir.
  • teikna og tengja einfaldar riðstraumsrásir.

Hæfniviðmið

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
  • tengja upp einfaldar riðstraumsrásir eftir teikningum og framkvæma á þeim mælingar.
  • reikna einfaldar riðstraumsrásir og sannprófa niðurstöður með lögmálum og/eða mælingum.
  • tengja og framkvæma mælingar á riðstraumsrásum með hjálp hermiforrits.
  • skrifa skýrslu um mælingar og niðurstöður þeirra.
Nánari upplýsingar á námskrá.is