RAFM2GC05 - Rafmagnsfræði og mælingar grunndeildar C

Grunndeld C

Einingafjöldi: 5
Þrep: 2
Forkröfur: RAFM2GB05 Rafmagnfræði og mælingar grunndeildar B
Lögð er áhersla á að nemendur fái þjálfun í reikningum á RLC-rásum varðandi riðstraumsviðnám, samviðnám, spennuföll og fasvik bæði í hliðtengdum og raðtengdum rásum. Læri um desebelútreikninga og notkun þeirra. Læri um helstu síur og hvernig hægt er að búa þær til úr RLC-rásum og framkvæma reikninga á þeim. Auk þess skulu nemendur kynnast umhverfisháðum viðnámum og táknum fyrir þau. Nemendur framkvæma einnig mælingar á síum og öðrum RLC rásum bæði með hjálp mælitækja og hermiforrits.

Þekkingarviðmið

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
  • hvernig riðstraumsrásir með spólum og þéttum hegðar sér við breytilega tíðni.
  • virkni helstu sía.
  • virkni umhverfisháðra viðnáma.
  • desebel útreikningum og logarithmiskum kvarða.

Leikniviðmið

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
  • framkvæma alla helstu reikninga í rað- og hliðtengdum rlc-rásum.
  • segja til um hvernig viðám og fasvik svona rása breytist með tíðni.
  • tengja og mæla í rlc-rásum.
  • reikna/hanna einfaldar síur.

Hæfniviðmið

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
  • tengja eftir teikningu og mæla í rlc-rásum bæði raðtengdum og hliðtengdum.
  • hanna einfaldar síur með þéttum viðnámum og spólum og gera á þeim mælingar.
  • gera mælingar á rlc- rásum yfir ákv. tíðnisvið og geta sett niðurstöður fram ídesebelum og í logaritmiskum kvarða.
  • nýta sér hermiforrit til mælinga á rásum.
  • geta sett niðurstöður mælinga fram í skýrsluformi.
Nánari upplýsingar á námskrá.is