RAFM3RE05 - Rafmagnsfræði og mælingar rafvirkjabraut A

Rafvirkjun E

Einingafjöldi: 5
Þrep: 3
Forkröfur: RAFM 3 GC 05 Rafmagnsfræði grunndeildar D
Í þessum áfanga er fjallað um framleiðslu á þrífasa spennu. Sýnt er hvernig sínuslaga spenna myndast í þrífasa rafölum og vektormyndir þeirra. Farið er yfir myndun hverfisegulsviðs og áhrif þess í rafvélum. Fjallað er um tengingar á þrífasa spennum og vélum og gerðar tengimyndir af þeim. Gerð er grein fyrir helstu þrífasa mælitækjum og tengingu þeirra og fjallað um áhrif bilana á rekstur þrífasa kerfa. Leyst eru einföld verkefni er varða rekstur þrífasa spenna, tækja og véla. Þá er farið í þrífasa rafmótora, rafala, spenna, rafvélar, og tæki.

Þekkingarviðmið

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
  • myndun þrífasa hverfisegulsviðs
  • tengingum þrífasa spenna, tækja og véla
  • töpum í þrífasa búnaði
  • fasviki í þrífasa búnaði og leiðréttingu á því
  • virknimyndum þrífasa búnaðar
  • vektormyndum þrífasa búnaðar

Leikniviðmið

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
  • teikna tengimyndir þrífasa spenna, tækja og vél
  • teikna vektoramyndir þrífasa búnaðar
  • reikna strauma, spennur, afl og fasvik í þrífasa búnaði
  • reikna stærð á búnaði til að leiðrétta fasvik í þrífasa kerfum

Hæfniviðmið

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
  • lesa leiðbeiningar og merkiskilti ýmiskonar þrífasa búnaðar
  • tengja þrífasa búnað við veitukerfi eftir upplýsingum á merkiskilti viðkomandi tækis
  • leiðbeint um val á búnaði og lögnum í viðkomandi veitukerfi
Nánari upplýsingar á námskrá.is