RATM2GA05 - Rafeindatækni og mælingar grunndeildar A

Grunndeild A

Einingafjöldi: 5
Þrep: 2
Forkröfur: RAFM 1 GA 05 Rafmagnsfræði og mælingar grunndeildar A
Áfanginn fjallar um hálfleiðara. Þá sérstaklega helstu gerðir af díóðum (tvistum), virkni þeirra og notkunarmöguleika. Farið er í hvernig nota má díóður í afriðun og kenndar nokkrar leiðir til að umbreyta AC í DC. Einnig er farið í grunnvirkni transistors og hvernig hann er forspenntur og farið í DC- reikninga transistors. Gert er ráð fyrir að nemendur læri einnig á helstu mælitæki svo sem fjölsviðsmæli og sveiflusjá auk þess að nota hermiforrit við mælingar á rásum.

Þekkingarviðmið

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
  • teiknitáknum díóða og bjt transistora.
  • virkni díóða og bjt transistora.
  • helstu gerum afriðla og virkni þeirra.
  • Í hvað þessir íhlutir eru helst notaðir.

Leikniviðmið

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
  • reikna einfaldar rásir með díóðum og transistorum.
  • reikna út dc spennu á mismunandi afriðlum.
  • teikna einfaldar rafeindarásir.
  • notkun helstu mælitækja sem notuð eru í rafeindatækni.
  • nota hermiforrit til mælinga á rafeindarásum.

Hæfniviðmið

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
  • hanna einfaldar rafeindarásir með díóðum og transistorum.
  • gera mælingar á þessum rásum og geta reiknað þær til samanburðar á mældum niðurstöðum.
  • geta skilað af sér skýrslu um mælingar á rásum.
  • geta framkvæmt mælingar til að ganga úr skugga um hvort íhlutir eru í lagi eða ekki.
Nánari upplýsingar á námskrá.is