RATM2GB05 - Rafeindatækni og mælingar grunndeildar rafiðna B

Grunndeild B

Einingafjöldi: 5
Þrep: 2
Forkröfur: RATM 2 GA 05 Rafeindatækni og mælingar grunndeildar rafiðna A
Áfanginn er framhald af RATM2GR05 og er hér haldið áfram að fjalla um BJT transistora. Þeir eru nú skoðaðir sem magnarar í mismunandi tengingum. Einnig er farið í aðra hálfleiðaraíhluti svo sem díak triak og týristor og virkni þeirra og notkun skoðuð. Nemendur kynnast einnig FET - transistorum og aðgerðamögnurum í þessum áfanga, helstu reikningum og notkunarmöguleikum þeirra. Nemendur gera mælingar bæði með mælitækjum og hermiforriti.

Þekkingarviðmið

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
  • hvernig hægt er að nota bjt transistora sem magnara og geta reiknað út helstu stærðir í þeim og framkvæmt mælingar.
  • hvernig diak, triak og tyristor virka, tákn og helstu notkunarmöguleika.
  • táknum og dc-reikningum varðandi fet transistora.

Leikniviðmið

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
  • framkvæma alla helstu reikninga varðandi bjt transistora bæði ac og dc.
  • framkvæma dc-reikninga í rásum með fet-transistorum.
  • framkvæma mælingar á rásum með hinum ýsmu hálfleiðaraíhlutum.
  • reikna mögnun í aðgerðamagnararásum.

Hæfniviðmið

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
  • tengja eftir teikningu allar helstu gerðir magnara með bjt-transistorum og framkvæma á þeim reikninga og mælingar bæði hvað varðar ac-og dc.
  • tengja eftir teikningu magnara með fet-transistorum og gera á honum dc-reikninga og mælingar.
  • nýta sér hermiforrit við gerð mælinga og sett niðurstöður mælinga fram í skýrslu.
  • geta tengt og framkvæmt mælingar á magnararás með aðgerðarmagnara.
  • geta tengt eftir teikningu og framkævmt mælingar á rásum með öðrum hálfleiðaraíhlutum svo sem diak, triak og týristor.
Nánari upplýsingar á námskrá.is