STÝR2GB05 - Stýritækni grunnnáms B

Grunndeild B

Einingafjöldi: 5
Þrep: 2
Forkröfur: STÝR1GA05
Í áfanganum fer fram kynning á loftstýringum, helstu loftmeðhöndlunartækjum og virkni þeirra. Fjallað er um nokkrar gerðir af loftstýrieiningum, svo sem loka og strokka og helstu tákn og tengimyndir sem notaðar eru í loftstýringum. Nemendur þjálfast í teikningum og tengingum á einföldum loftstýringum. Haldið er áfram með segulliðastýringar þar sem frá var horfið í fyrri áfanga en nú með tengingum við loftstýringar. Nemendur hanna og tengja loftstýribúnað sem stjórnað er af segulliðastýringum. Eins og í fyrri áfanga er áhersla lögð á verkefnavinnu og verklegar æfingar sem felast í að brjóta efni áfangans til mergjar, tengja, prófa, mæla og taka saman niðurstöður.

Þekkingarviðmið

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
  • helstu kostum og göllum við loftstýringar.
  • virkni og notkun á loftpressum, loftsíum, smurtækjum, lofthylkjum og öryggislokum.
  • virkni og notkun á einvirkum og tvívirkum strokk.
  • virkni og notkun á 2/2-, 3/2- og 5/2-lokum sem stýrt er handvirkt, með rafmagni, með lofti og vélrænt.
  • virkni og notkun á deyfistefnu-, tvíþrýsti- og einstefnulokum.

Leikniviðmið

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
  • teikna virkni- og tengimyndir og tengja eftir teikningum.
  • tengja segulliða- og loftstýringar saman.

Hæfniviðmið

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
  • framkvæma bilanaleit í loftstýringum.
  • skilja upplýsingar af skiltum rafmótora.
Nánari upplýsingar á námskrá.is