STÝR3GC05 - Stýritækni grunnnáms C

Grunndeild C

Einingafjöldi: 5
Þrep: 3
Forkröfur: STÝR2GB05
Í áfanganum eru kynnt helstu stýrikerfi sem notuð eru í iðnstýringum, þ.e. segulliðastýringar, loftstýringar, rafeindastýringar og iðntölvustýringar og farið dýpra í segulliðastýringar, þ.e. kraft- og stýrirásir, heldur en gert var í STYR1A5. Farið er yfir virkni og notkun yfirálagsvarna, mótorvarrofa og varnarbúnaðar sem notaður er í kraft- og stýrirásum. Haldið er áfram með teikningar og staðla sem og kennslu teikniforrita fyrir segulliðastýringar (t.d. Acad og/eða PCschematic). Farið er yfir notkun tengilista og tengilistanúmera, strengja- og víramerkingar. Kynntar eru nokkrar ræsiaðferðir rafmótora, svo sem Y/D-ræsing, Dahlander-ræsing, bein ræsing og mjúkræsingar. Námið í áfanganum byggist að miklu leyti á verkefnavinnu og verklegum æfingum þar sem nemendur brjóta verkefni til mergjar, tengja, prófa og mæla og taka saman niðurstöður. Lögð er áhersla á að nemendur nýti sér mælitæki til að finna tengivillur og bilanir.

Þekkingarviðmið

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
  • helstu stýrikerfum sem notuð eru í iðnstýringum.
  • notkun og virkni á yfirálagsvörnum fyrir rafmótora, mótorvarrofa og varnarbúnað sem notaður er í tengslum við kraft- og stýrirásir.
  • notkun og virkni endastoppsrofa, flotrofa og neyðarstoppsrofa.
  • • notkun og virkni á þrýstiliðum og segullokum.
  • notkun á tengilistum og tengilistanúmerum.
  • notkun á merkingum, þ.e. víra- og strengjamerkingum

Leikniviðmið

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
  • nota nokkrar ræsiaðferðir fyrir rafmótora.
  • nota teikniforrit fyrir stýrirása- og kraftrásateikningar.

Hæfniviðmið

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
  • framkvæma bilanaleit í segulliðastýringum.
  • skilja upplýsingar af skiltum rafmótora.
  • tengja stýri- og kraftrásir skammhlaups-mótora.
Nánari upplýsingar á námskrá.is