VGRT2GB03 - Verktækni grunnnáms B

Grunndeild B

Einingafjöldi: 3
Þrep: 2
Forkröfur: VGRT1GA03
Nemendur beiti þekkingu sinni til að smíða rafeindarásir með að minnsta kosti 10 íhlutum. Nemendur smíði einfalda prentplötu. Nemendur smíða einfalt box eða kassa úr áli, blikki eða plexigleri. Nemendur lesa teikningu frá kennara og læri um hlutverk íhluta og virkni. Nemendur smíða rásir, beita mælitækjum til að kanna virkni rása og til að átta sig á hvaða afleiðingar það hefur ef einstaka íhlutir bila. Með mælingum og aðstoð kennara gera þeir einfalda bilanaleit.

Þekkingarviðmið

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
  • hlutfalli milli straums, spennu og viðnáms.
  • breytingum sem verða á spennu ef viðnám breytist.

Leikniviðmið

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
  • lóða íhluti upp á prentplötu.
  • reikna afltöku rásarinnar.
  • reikna strauma út frá mælingum á spennum og viðnámum.
  • skilja virkni rásarinnar.

Hæfniviðmið

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
  • teikna rafeindarás á blað.
  • reikna afltöku rásarinnar.
  • reikna strauma út frá mælingum á spennum og viðnámum.
  • skilja virkni rásarinnar.
Nánari upplýsingar á námskrá.is