RLTK2RB05 - Raflagnateikning

Rafvirkjabraut

Einingafjöldi: 5
Þrep: 2
Forkröfur: Grunndeild Rafiðna
Megin áhersla áfangans felur í sér að nemendur tileinki sér lestur og teikningu raflagnateikninga. Þeir fá þjálfun í að teikna og lesa úr raflagnateikningum og lögð áhersla á lagnir að og með 63 Amper. Farið verður í staðalákvæði og öryggisþætti við frágang raflagnateikninga. Nemendur læra að rissa teikningu af raflögn. Þá er þeim kennt að gera magntöluskrá og meta kostnað við lagningu raflagna samkvæmt raflagnateikningu.

Þekkingarviðmið

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
  • reglum um blaðstærð fyrir teikningar, mælikvarða þeirra og teikniáhöld
  • Íslenskum staðali um raflagnateikningar fyrir smærri neysluveitur að og með 63 a.
  • heitum og hugtökum raflagnateikninga
  • magn- og kostnaðartöku raflagna

Leikniviðmið

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
  • lesa úr raflagnateikningum
  • nýta sér hugtök og heiti sem nota þarf við gerð raflagnateikninga.
  • nýta sér staðlaákvæði er lúta að hönnun raflagnateikninga

Hæfniviðmið

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
  • lesa allar nauðsynlegar upplýsingar úr raflagnateikninu svo hann geti lagt raflögn eftir þeim
  • velja og ákvarða efni fyrir raflagnir í neysluveitum að og með 63 a
  • meta magn og kostnað við við ofangreindar raflagnir
  • framfylgja ákvæðum staðals við gerð raflagnateikninga.
  • rissa teikningu að smærri neysluveitu s.s. fyrir íbúð og sumarhús með teiknireglur og staðalákvæði að leiðarljósi.
Nánari upplýsingar á námskrá.is